Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 663/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 663/2021

Fimmtudaginn 27. janúar 2022

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. desember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 8. desember 2021, um synjun á umsókn hennar um félagslegt leiguhúsnæði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 22. september 2021, sótti kærandi um félagslegt leiguhúsnæði hjá Reykjavíkurborg. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 14. október 2021, með þeim rökum að hún uppfyllti ekki skilyrði e-liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti þá synjun á fundi 8. desember 2021.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 9. desember 2021. Með bréfi, dags. 13. desember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst 21. desember 2021 og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. desember 2021, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún sé í erfiðri stöðu, hún sé að bíða eftir lífeyri þar sem hún geti ekki unnið vegna heilsuleysis. Kærandi sé einstæð móðir tveggja barna og þurfi aðstoð með húsnæði þar sem hún hafi ekki efni á að borga 240 þúsund kr. í leigu. Kærandi hafi þurft að taka lán hjá Reykjavíkurborg þar sem hún hafi ekki haft efni á að borga fyrir íbúðina, hvað þá að lifa. Kærandi óski því eftir aðstoð.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Tekið er fram að kærandi hafi verið með gilda umsókn um félagslegt leiguhúsnæði um nokkurt skeið. Umsókn hennar hafi verið endurmetin samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og þá fallið úr gildi þar sem hún hafi ekki náð lágmarksstigagjöf, eða 12 stigum.

Reykjavíkurborg vísar til þess að um úthlutun og meðferð umsókna um félagslegt leiguhúsnæði gildi reglur Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði sem hafi verið samþykktar á fundi velferðarráðs þann 13. mars 2019 og á fundi borgarráðs þann 2. maí 2019. Í 2. gr. reglnanna komi fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar og annarra félagslegra erfiðleika. Í 4. gr. reglnanna komi fram að umsóknir skuli metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum, sbr. fylgiskjal nr. 1 með reglunum. Við lok mats séu reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skuli umsækjandi vera metinn til að lágmarki 12 stiga þegar um sé að ræða einstakling/hjón/sambúðarfólk með tvö börn, sbr. 3. tölul. e-liðar 4. gr. reglnanna.

Umsókn kæranda hafi verið metin á grundvelli framangreinds matsviðmiðs og niðurstaðan verið sú að hún hafi verið metin til 11 stiga. Sumir þættir matsins séu ekki háðir mati, eins og staða og tekjur umsækjanda, en aðrir þættir séu háðir mati, svo sem húsnæðisstaða og félagslegur vandi umsækjanda.

Kærandi hafi fengið 2 stig vegna stöðu sinnar, en hún hafi verið á endurhæfingarlífeyri og það séu hámarksstig fyrir þann lið. Hvað varði stig vegna tekna þá hafi ekki verið veittar undanþágur frá þeim viðmiðum sem þar séu sett. Tekjur kæranda hafi numið 4.345.404 kr. fyrir árið 2020. Samkvæmt matsviðmiðum fái umsækjandi eitt stig ef árstekjur séu á bilinu 3.474.251 kr. til 5.345.000 kr. Þættir er varði félagslegar aðstæður kæranda séu háðir mati. Stig fyrir húsnæðisstöðu umsækjenda séu metin út frá umfangi húsnæðisvanda og séu gefin 0, 1, 2 eða 3 stig. Kærandi hafi verið metin til 1 stigs og falli undir matsviðmiðið; Verulega íþyngjandi húsnæðiskostnaður. Húsnæðiskostnaður að frádregnum húsnæðisbótum og sérstökum húsnæðisstuðningi er hærri en 30% af heildartekjum heimilis.

Stig vegna félagslegs vanda umsækjenda séu metin út frá umfangi vanda og séu gefin 0, 1, 2, 4 eða 6 stig. Félagslegur vandi kæranda hafi verið metinn til 4 stiga og falli undir matsviðmiðið; Umsækjandi glímir við fjölþættan vanda sem hefur afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu og/eða færni til að leigja á almennum markaði, þrátt fyrir stuðning félagsþjónustu eða annarra viðurkenndra aðila. Þegar umsækjendur séu metnir til 6 stiga séu málefni barna umsækjanda til meðferðar hjá            Barnavernd Reykjavíkur eða upp hafa komið skyndileg alvarleg veikindi sem hafi afgerandi áhrif á húsnæðisstöðu, þar með talið getu viðkomandi til að finna húsnæði samkvæmt mati ráðgjafa. Það eigi ekki við um stöðu kæranda og því sé ekki heldur unnt að veita fleiri stig hvað þann þátt varði.

Áfrýjunarnefnd velferðarráðs hafi því talið að staðfesta bæri niðurstöðu þjónustumiðstöðvar um 11 stig samkvæmt matsviðmiðum reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði og þar með synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.

Reykjavíkurborg bendi á að með notkun matsblaðs sé leitast við að gæta jafnræðis meðal umsækjenda og veita þeim stig á grundvelli atriða sem séu nánar tilgreind í matsblaðinu og stigagjöf taki mið af aðstæðum viðkomandi. Það hafi því verið mat áfrýjunarnefndar velferðarráðs að ekki væri ástæða til að breyta fyrirliggjandi stigagjöf þjónustumiðstöðvar með vísan til aðstæðna kæranda og jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfest synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar á grundvelli stigagjafar, sbr. 3. tölul. e-liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Að mati Reykjavíkurborgar hafi hin kærða ákvörðun hvorki brotið gegn framangreindum reglum né lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

IV.  Niðurstaða

Kærð er synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði. Umsókninni var synjað á þeirri forsendu að skilyrði e-liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði væri ekki uppfyllt.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Þá skuli sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við húsnæðismál, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í XII. kafla laganna er kveðið á um húsnæðismál. Þar segir í 1. mgr. 45. gr. að sveitarstjórnir skuli, eftir því sem kostur er og þörf er á, tryggja framboð af leiguhúsnæði, félagslegu kaupleiguhúsnæði og/eða félagslegum eignaríbúðum handa þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki eru á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum lágra launa, þungrar framfærslubyrðar eða annarra félagslegra aðstæðna. Samkvæmt 46. gr. laganna skulu félagsmálanefndir sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn.

Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í reglum Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði er kveðið á um útfærslu á þjónustu sem sveitarfélögum er skylt að veita, sbr. XII. kafla laga nr. 40/1991. Í 2. mgr. 2. gr. reglnanna kemur fram að almennt félagslegt leiguhúsnæði sé ætlað þeim fjölskyldum og einstaklingum sem ekki séu á annan hátt færir um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna, þungrar framfærslubyrðar og lágra launa. Í 4. gr. reglnanna er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði samþykkt á biðlista og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum 1. mgr. ákvæðisins.

Samkvæmt e-lið 4. gr. skulu umsóknir metnar samkvæmt ákveðnum matsviðmiðum, sbr. fylgiskjal nr. 1 með reglunum. Við lok mats eru reiknuð stig fyrir hvern þátt fyrir sig. Til þess að umsókn verði samþykkt á biðlista skal umsækjandi vera metinn að lágmarki til 12 stiga þegar um er að ræða einstakling með tvö börn líkt og á við í tilviki kæranda. Sumir þættir matsviðmiðsins eru ekki háðir mati, eins og staða umsækjanda, tekjur og börn á heimili umsækjanda. Kærandi fékk sex stig samanlagt fyrir þá þætti og gerir úrskurðarnefndin ekki athugasemd við það. Aðrir þættir eru háðir mati, svo sem húsnæðisstaða, sérstakar aðstæður barna og félagslegur vandi umsækjanda. Húsnæðisstaða kæranda var réttilega metin til eins stigs og félagslegur vandi kæranda var metinn til fjögurra stiga sem úrskurðarnefndin gerir ekki athugasemd við, enda verður að telja ljóst að aðrir liðir matsviðmiðsins sem gefa fleiri stig eigi ekki við um aðstæður hennar.

Samkvæmt framangreindu var umsókn kæranda metin til 11 stiga og uppfyllti hún því ekki skilyrði e-liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegt leiguhúsnæði. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að staðfesta beri synjun Reykjavíkurborgar á umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 8. desember 2021, um að synja umsókn A félagslegt leiguhúsnæði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum